Tuesday, November 4, 2008

Stígvél, snjór og jól




helgin hefur verið erfið... alltof mikill bjór. á föstudaginn var okkur boðið í halloween partý af The international office eftir að við héldum kynningum um landið okkar fyrir almenning Otaru og skólann okkar. eftir partýið var annað partý í sameiginlega herberginu okkar hérna og við útlendingarnir fengum loksins samkeppni um hver getur drukkið sem mest frá japönunum :) þeir voru duglegir með meiru og þó að aðeins helmingurinn hafi höndlað að fara niður í bæ með okkur útlendingunum er það mun meira en venjulega!! kvöldið var verulega skemmtilegt og mun skemmtilegra en morguninn eftir þegar nágranni minn vakti mig upp klukkan 11 til að draga mig til Wing bay í leit að þynnkumat og afþreyingu. við enduðum á því að éta hálfa verslunarmiðstöðina og eyða 10 tímum þar inni, án þess að kaupa nokkurn skapaðan hlut... nei ég lýg því nú við keyptum tannkrem alveg heila túpu af tannkremi. á sunnudeginum ákvað ég síðan að skondrast til sapporo í leit minni að sléttujárni og hárblásara til að fara með stórkostlega nýja litnum sem ég fékk sendan frá uppáhaldsmömsunni minni :)
það var að sjálfsögðu mjög mjög mjög nauðsynlegt að kaupa sér svona eins og einn lítinn bjór þar af leiðandi að við vorum í Sapporo og enginn skóli á mánudeginum. verst að við ákváðum að kaupa okkur þennan bjór:
þessi fallegi bjór er 2,5 líter og við drukkum 2!! gáfað! svo var snúið við til Otaru og gegnið inn á karaokibar eins og venjulega. jólin eru líka að koma í augum japana og allir eru farnir að skreyta af miklu móð! maður verður bara að fara að kaupa sér jólaskreytingu sem fyrst held ég bara. í dag a þessum fallega þriðjudagsmorgni gerðist það sem ég hef verið að bíða eftir síðasta mánuðinn... það snjóaði. og auðvitað af því að ég er heppnari en allt sem heppið er þá er ég lasin og kemst ekki út. ég stend við svalahurðina mína og stari út um gluggann á fyrsta snjóinn bráðna án þess að hafa tekið neinn þátt í að labba í honum.. grátur grátur vorkenn vorkenn

7 comments:

Anonymous said...

Fá það fór alveg svona fiðringur um minn þegar ég var að lesa um snjóinn og jólin...jólin :)

Anonymous said...

ohhh erfitt líf!

djöfulli djöfulli sakna ég þín sjúklega mikið
þú ert svo ógeðslega skemmtileg, mig langar ekkert meira í heiminum á þessari stundu (ok jú kannski heimsfrið) en að drekka bjór upp úr stígvéli með þér!!!

Anonymous said...

ohhh erfitt líf!

djöfulli djöfulli sakna ég þín sjúklega mikið
þú ert svo ógeðslega skemmtileg, mig langar ekkert meira í heiminum á þessari stundu (ok jú kannski heimsfrið) en að drekka bjór upp úr stígvéli með þér!!!

Rauðhetta said...

ohhhhhhhh sakna þín líka sibban mín og ég sakna þín líka martan mín!! stígvéla drykkja er mega mega kúl!!!

Anonymous said...

heyrðu takk fyrir að skilja eftir bloggið þitt, nú hef ég eitthvað skemmtilegt að gera hér í austantjaldslöndum annað en að læra hehe... Úllalla hljómar eins og þú sért að skemmta þér ýkt vel, gaman gaman !!!! Vona að þú farir að hressast af flensunni!
kv.
ÞuraPura

Anonymous said...

nú er kominn tímin á nýtt blogg!!!

Anonymous said...

nú er kominn tímin á nýtt blogg!!!