Monday, June 1, 2009

Wednesday, April 22, 2009

samangamangamansaman

var að huxa um daginn... aldrei slíku vant... og ég mundi eftir verslunarmannahelginni upp í body shop bústað! er það í alvöru síðasta skiptið sem við vorum öll á sama stað á sama tíma? snilldar helgi! múúúúúúú vil svoleiðis helgi þegar ég kem heim!!!

Friday, February 27, 2009

Hver eru verstu súperhetju nöfnin sem ykkur dettur í hug?

Thursday, February 26, 2009

Tæwan og Kína

Brjálað að gera í að vera í fríinu...erum búin að hendast út um allan bæ í leit að landsvistarleyfum og inn-í-landið aftur leyfi og hérna í skrifinnsku japan tekur þetta allt sinn tíma. en þetta er allt þess virði... vonandi... því eftir eina litla viku verð ég í tókíó og eftir eina litla viku og einn lítinn dag verð ég á strönd í Taipei!! get ey beðið. ég elska snjóinn og veturinn en er komin með dáldið nóg af því að geta aldrei farið í fancí skóna mína sem ég keypti síðast í tókíó.. þarf alltaf að vera í gæða skinn skónum sem pabbalingur gaf mér frá grænlandi þýðir ekkert annað í snjó upp á mið læri. prófin eru búin alltaf ljúft þegar þau klárast. gengu bara vel, allavega þau sem ég er búin að fá einkunnir í. eitt sem ég er hrædd við.... eins og alltaf....
við verðum frá 6-20 í taipei og frá 21-24 í beijing og svo einhverja daga í tókíó! hérna er Tæwan bara til að vekja öfund:


ég ætla svo að fara hingað svona um það bil korteri eftir að við lendum á hótelinu ;)


það var fremur ódýrt að kaupa miðann til Beijing. hann verður reyndar dýrari með hverjum deginum vegna landvistarleyfa og þess lags vitleysu sem við þurfum ekki fyrir Tæwan af einhverjum ástæðum! ein heyyyy ég fæ að sjá múrinn og leyfi til að segja ha já ég hef komið kína og eins þið vitið finnst mér það ógurlega skemmtilegt.


´næstu vikuna verðum við Gill einar í húsinu! allir nú þegar farnir í frí og Tímó fer á laugardaginn með mömmu sinni til Tókíó. hún er búin að vera hér síðustu vikuna... múúú mig langar í mína mömsu ;) kossar og knús

Friday, February 6, 2009

baunir og afmælisgjafir.

Það er búið að vera nóg að gera hjá manni upp á síðkastið. skólinn er að klárast og við erum komin í prófalestur, hann er nú ekki mikið öðruvísi en heima eiginlega bara ekkkert alveg jafn þreytandi og endalaus. síðasta þriðjudag var síðasti dagur vetrar. það þýðir að á miðvikudeginu var fyrsti dagur vors. þetta er eina vorið sem ég hef upplifað sem hefur snjó upp á mið læri. og ég er frá ÍSlandi. á síðasta degi vetrar er til siðs hér í japan að henda baunum í leikna djöfla til þess að ýta frá sér og híbýlum sínum vondum verum og fá í staðinn hamingju og góða strauma. Tomita sensei annar af kennurunum okkar í japönsku gaf okkur baunir til þess að fleygja í hvert annað og sagði okkur að við ættum að skilja eftir og borða jafnmargar baunir og árin í lífi okkar. ég varð södd við tilhugsunina enda fjörgömul kona! myndin er af baununum í poka þær heita setsupun. þegar maður fleygir baununum í djöfulinn á maður að æpa oni wa soto, fuku wa uchi. sem þýðir það vonda út og inn með hamingjuna.


ég fékk senda tvo pakka í síðustu viku, er svo geypilega vinsæl. annar var með afmælisgjöf frá ma og pa og smá hrökkbrauði og ópal og öðru gúmmelaði :) hinn var með gjöf frá systrunum og þar á meðal var mynd sem systursonurinn teiknaði af frænku sinni!! veit ekki hvaðan drengurinn fær þessa hæfileika! sér einhver af hvaða mynd þetta er ;)


Þetta minnir ykkur á það

Monday, January 26, 2009

27 ára og eins dags. það er erfitt að vera ég.

Wednesday, January 21, 2009

Gömul, eldri, elst

21 janúar í dag, 4 dagar í að ég verði ennþá eldri en ég er í dag og þá er nú mikið sagt.

það er sossum ekkert mikið búið að vera að gerast hérna þessa dagana. við kláruðum jólafríið og erum aftur komin í skólann. það eru bara 3 litlar vikur í lokapróf og þá hefst marsmánuður frelsins. ég og 3 aðrir krakkar héðan úr alþjóðlega húsinu erum að plana ferð um japan, kína og kóreu í einhverjar af þessum 6 vikum sem við eigum í frí. planið enn sem komið er er að fara frá Sapporo til Tokyo og þaðan til Bejing og sjá múrinn og forboðnu borgina og svona. svo er förinni heitið aftur til Tokyo og þaðan til Kyoto, svo Nara og að lokum Osaka þar sem við ætlum að taka ferju yfir til Pukan í Suður-Kóreu. þaðan á svo að fara til Seoul. við erum ekki alveg búin að plana ferðina heim, hvort það verður tekið flug beint til sapporo eða lestirnar og bátarnir teknir til Tokyo og svo flug heim en það kemur allt í ljós. Nú er bara að fara að selja líffæri til að borga fyrir þetta ævintýri :)
um helgina er svo planið að fara til Sapporo út að borða og á klúbbarölt í tilefni af afmælinu mínu og svo heppilega vill til að Stevan, annar af frönsku gaurunum hérna á líka afmæli 25. svo þetta verður tvöföld stórveisla :) ég þakka gvvvuðunum fyrir að hann er að verða 28 og ekki ég.... ég verð ekki elst það kvöldið....