Friday, January 2, 2009

áramótablús


jæja nýtt ár komið... 2009... bjánaleg tala. Ég skemmti mér stórvel um áramótin þó að ég hafi saknað rakettanna heima... og fólksins. og fólksins sem var líka í útlandinu. okkur var boðið í heimsókn til japanskarar fjölskyldu í mat. mjög almennilegt af þeim.
áramótin hérna eru öll um fjölskylduna svo það var mjög almennilegt af þeim að bjóða okkur í matinn með þeim. þar af leiðandi að þetta er fallegur fiskibær og land sem elskar fisk meira en flestar þjóðir er áramótamaturinn fiskur, hrár, steiktur, djúpsteiktur, og allt þar á milli gleði... ég saknaði mjög nautalundarinnar hennar mömsu og hans inga. grátur.
sakn sakn sakn. á morgun byrjar svo 3 daga skíðabrjálæði. 3 dagar af 8 klukkutímum af skíðabrjálæði. ég kvíði pínku fyrir. skíðalappirnar mínar gömlu eru ekki alveg komnar í lag. og ég er ekki hrifin af hreyfingu...

4 comments:

Anonymous said...

já við söknuðum þín öll um áramótin...ég reyndi að fylgjast pínu með fjölskyldunni þinni af svölunum á drápó...vakti upp góðar minningar :)

Rauðhetta said...

hehe þú hefðir átt að henda þér yfir heilsa upp á liðið hehe sakni sakn

Anonymous said...

ekki hrifin af hreyfingu

yndislegt fullyrðing- sakna þín

þú tekur þig vel út á skíðunum

Anonymous said...

ekki hrifin af hreyfingu

yndislegt fullyrðing- sakna þín

þú tekur þig vel út á skíðunum